Ræktun,þjálfun,sala
Lögð er rík áhersla á hestvænar tamningar og þjálfunaraðferðir, að hrossin séu óttalaus við manninn og viðurkenni hann sem leiðtoga og framkvæmi það sem þau eru beðin um sátt og slök. Reynt er að hafa þjálfunina fjölbreytta og skemmtilega og hesturinn byggður upp á jákvæðan hátt þar sem mýkt og rétt líkamsbeiting er höfð að leiðarljósi
Ræktunarmarkmið okkar er að rækta geðgóð og hreingeng hross, með góðan vilja, fótaburð og rými á gangi, sem hæfa sem flestum reiðmönnum, geta gegnt ýmsum hlutverkum, eru góð reiðhross, keppnishross eða kynbótahross.
Í hesthúsinu er pláss fyrir 36 hross, allt í 9 fm, tveggja hesta stíum. Hesthúsið er allt hið glæsilegasta. Sambyggt hesthúsinu er stór og glæsileg reiðhöll 50x16m að stærð og fyrir utan hesthúsið eru 5 samliggjandi gerði, 2 mjög stór og 3 aðeins minni.
Vegna reiðhallarinnar skapast aðstæður sem gera vinnuna vandaðri og markvissari auk þess sem ekki falla út dagar vegna veðurs.
Reiðleiðir eru góðar, og má meðal annars nefna að aðeins er 20 mín. reið niður á Löngufjörur. Góð reiðleið er með Núpá og tengileiðir frá henni að öllum bæjum sem liggja að ánni og síðan leiðir milli þeirra. Reiðleiðir eru því góðar um allt næsta nágrenni án þess að fara þurfi þjóðveginn. Söðulsholt er staðsett á sunnanverðu Snæfellsnesi, u.þ.b. 50 km frá Borgarnesi
Um jörðina
Jörðin er um það bil 1118 ha lands og var lengst af talin allgóð bújörð, eða til 1936 er hún var gerð að prestssetri, en aldrei hefur verið þar kirkjustaður svo vitað sé. Árið 1994 var prestakallið stækkað samkvæmt lögum og prestssetrið flutt að Staðarstað og heitir síðan Staðarstaðarprestakall.
Jörðin var síðan leigð af ríkinu árið 1985 og stunduð þar hrossarækt og loðdýrabúskap til1996.
Árið 1998 kaupa svo núverandi eigendur, Inga og Einar, jörðina og hefur þar verið stunduð þar hrossarækt, skógrækt, byggrækt og nú síðast ferðaþjónusta.
Um okkur
Einar Ólafsson og Ingibjörg Jónsdóttir, eigendur Söðulsholts síðan 1998, hafa ferðast víða um heiminn og búið í fjöldamörg ár bæði í Luxembourg og Bandaríkjunum. Á efri árum lét Einar draumana rætast og gerðist hrossabóndi og flutti í Söðulsholt.
Þegar Einar eignaðist Söðulsholt voru útihúsin gömul og ónothæf fyrir þá starfsemi sem hann vildi byggja upp. Því voru húsin rifin og byrjað var á byggingu nýs íbúðarhúss og svo hesthúss og reiðhallar sumarið 2006.
Árið 2016 lét Einar síðan byggja 4 glæsilega bústaði sem eru til útleigu. Tvö af börnum Einars, Halldóra og Ólafur, sjá alfarið um útleigu á bústöðunum. Barnabarn Einars, Inga Dís, er dugleg að sinna hestamennsku og hefur gaman af að þjálfa og taka þátt í keppnum, en hún hefur unnið til fjölda verðlauna. Arek og Martyna, ásamt aðstoðarfólki, taka á móti gestum sem hafa áhuga á að fara í einkareiðtúra. Slík þjónusta er þó aðeins í boði fyrir gesti sem gista í bústöðunum í Söðulsholti. Upplýsingar um bústaðina er hægt að finna með því að smella á hér.
Arek og Martynu til aðstoðar á sumrin koma nemendur frá Austurrískum menntaskóla í verknám, en öll hafa sterkan áhuga og reynslu af hestamennsku og eru dugleg að læra og tileinka sér þau vinnubrögð sem eru viðhöfð í hesthúsinu. Einnig hjálpa þau til við skógræktina.
Hafa Samband
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum eða ef þið viljið koma athugasemdum á framfæri, hafið þá vinsamlega samband með því að senda okkur tölvupóst á neðangreint netfang eða fyllið út og sendið eyðublaðið hér að neðan.