Mikið um að vera um helgina

7. maí, 2018

Við fengum flotta hjálp síðustu helgi í að laga girðingar og hlið, en veturinn fór illa með girðingarnar og svo átti eftir að laga og setja upp hlið.  Gerðin voru einnig tekin í gegn og hliðin löguð sem voru orðin skökk. Yngsta kynslóðin fékk líka að vera með, nú eða fékk smá reiðkennslu hjá Ingu Dís.