Kvartett frá Túnsbergi

F - Seld / seldur

IS2009188277

Foreldrar

F: Gaumur frá Auðsholtshjáleigu

M: Staka frá Litlu-Sandvík

Umsögn

Kvartett er mjög vel ættaður fyrstuverðlauna alhliðahestur sem hefur meðal annars hlotið 8.5 fyrir tölt, brokk, skeið, vilja, fegurð og fet. Foredrar hans þarf varla að kynna. Faðir hans, Gaumur er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og búinn að skila fjölda afrekshrossa í keppni og á kynbóabrautina. Mamma hans Kvartetts er hin þekkta Staka frá Litlu- Sandvík sem er búin að skila mörgum fyrsta verðlauna afkvæmi, meðal annars Tenór frá Túnsbergi sem fékk 9,15 fyrir hæfileika.
Kvartett hefur virkilega gott tölt upplag og aðeins hefur verið byrjað að keppa á honum í tölti, í hans annarri keppni hlaut hann 6.56 . Hann er mjög viljugur, næmur og kraftmikill hestur. Hann er mjög góður í umgengi og lætur ekki mikið yfir sér þó hann sé stóðhestur. Hann þarf þó vel reyndan knapa því hann er mikið næmur með mikla orku. Kvartett er mikið taminn hestur sem getur framkvæmt flóknar fímiæfingar. Hann verður góður keppnishestur í tölti og jafnvel með tímanum í A/B flokk og eða fimmgang. Eðlishágengur skrokkmjúkur klár sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara.

Kvartett is a very well bred, first price stallion, which received 8,5 for tölt, trot, pace, walk, character and form under rider in the breeding evaluation. His pedigree is extraordinary and does almost not need any further explanation. His father Gaumur is an honorary price stallion who has very successful offspring in almost every competition and breeding show nowadays. His mother is the well-known Staka frá Litlu-Sandvík who has given several first price offspring, one of them, Tenór frá Túnsbergi, who received 9,15 for ridden abilities.
Kvartett has very good tölt and he just recently started his competition career in which he received 6,56 in his second T1 ever. He is a very quiet horse and exceptionally sweet in handling, no stallion behavior at all. While ridden he is very powerful and sensitive, but always attentive to his rider. Because of this power and sensitivity he needs an experienced rider. Kvartett is very well schooled and can perform difficult dressage exercises with ease. He is naturally a very high- stepping horse with a lot of elasticity in his body. Kvartett will without doubt do well in tölt competitions of the future, eventually also in A or B flokkur. He is a very exciting project for an ambitious rider or breeder who wants a top horse.

Eigandi

Gunnar Kristinn Eiríksson, Bjarki Þór Guðmundsson og Magga Brynjólfsdóttir

Afkvæmi